Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Samstarfskona hans vatt sér að honum og sagði þreytulega að hún hefði aldrei kynnst sjálfhverfari manni en honum. Hann þyrfti að líta upp úr sjálfum sér og veita öðru fólki athygli, hlusta á aðra í stað þess að tala aðeins um sjálfan sig. Síðan var hún rokin á braut. Í fyrstu var hann sár en síðan flugu um hugann allar samfélagsmiðlafærslur hans sem snerust ekki um annað en hann sjálfan. Skyndilega kom honum til hugar að lýsa eftir sjálfum sér. Viðbrögðin létu ekki á sér standa: Þú sem varst dauður ert kominn til lífs, þú sem varst týndur ert fundinn.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: