Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk um beina en Lasarus var einn þeirra sem að borði sátu með honum. Þá tók María pund af ómenguðum, dýrum nardussmyrslum og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu fætur hans. En húsið fylltist ilmi smyrslanna. Segir þá Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans, sá er mundi svíkja hann: „Hví voru þessi smyrsl ekki seld fyrir þrjú hundruð denara[ og gefin fátækum?“ Ekki sagði hann þetta af því að hann léti sér annt um fátæka heldur af því að hann var þjófur. Hann hafði pyngjuna og tók af því sem í hana var látið. Þá sagði Jesús: „Lát hana í friði. Hún hefur geymt þetta til greftrunardags míns. Fátæka hafið þið ætíð hjá ykkur en mig hafið þið ekki ávallt.“
Nú frétti allur fjöldi Gyðinga af því að Jesús væri í Betaníu og þeir komu þangað, ekki aðeins hans vegna heldur og til að sjá Lasarus sem hann hafði vakið frá dauðum. Þá ákváðu æðstu prestarnir að taka einnig Lasarus af lífi því vegna hans sneru margir Gyðingar baki við þeim og fóru að trúa á Jesú.

Degi síðar frétti hinn mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem. Fólk tók þá pálmagreinar, fór út á móti honum og hrópaði:
„Hósanna!
Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins,
konungur Ísraels!“
Jesús fann ungan asna og settist á bak honum, eins og skrifað er:
Óttast ekki, dóttir Síon.
Konungur þinn kemur
og ríður ösnufola.
Lærisveinar hans skildu þetta ekki í fyrstu en þegar Jesús var dýrlegur orðinn minntust þeir þess að þetta var ritað um hann og að þeir höfðu gert þetta fyrir hann.

Jóhannesarguðspjall 12. 1-16

Hundrað orða hugleiðing

Blaðamaðurinn smeygði sér laumulega inn í forvitnilegt kvöldverðarboðið. Hafði frétt að þarna væri meistarinn frá Nasaret kominn. Líka maðurinn sem meistarinn hafði vakið upp frá dauðum – sannarlega spennandi myndefni. Hann smellti myndum af í gríð og erg svo lítið á bar. Kona nokkur settist við fætur meistarans og strauk þá mjúkum höndum sínum með angandi smyrslum svo ilmur fyllti allt húsið. „Geggjuð stund,“ hugsaði blaðamaðurinn. Hann fann hvernig kvöldið var rafmagnað jákvæðum straumum sem kæfðu hræsni popúlistans sem tungulipur þóttist bera hag fátækra fyrir brjósti sínu. „En hér er meistarinn núna,“ sagði blaðamaðurinn lágróma og sá fyrir sér forsíðu aldanna.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir