Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól og klæði hans urðu björt eins og ljós. Og Móse og Elía birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. Pétur tók til máls og sagði við Jesú: „Drottinn, gott er að við erum hér. Ef þú vilt skal ég gera hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“
Meðan Pétur var enn að tala skyggði yfir þá bjart ský og rödd úr skýinu sagði: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!“
Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög. Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti: „Rísið upp og óttist ekki.“ En er þeir hófu upp augu sín sáu þeir engan nema Jesú einan.
Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim: „Segið engum frá sýninni fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum.“

Matteusarguðspjall 17. 1-9

Hundrað orða hugleiðing

Ekki í fyrsta sinn sem meistarinn stakk upp á hressandi fjallgöngu. Gráupplagt, sögðu þeir brosandi. Þeim brá hastarlega á fjallinu þegar ægibirta hvolfdist yfir og fornir höfðingjar gengu fram. Það fór líka sælustraumur um þá enda þeir ekki svo langt frá orkubúi himnanna. Upplagt að skjóta upp tjöldum fyrir kappana þrjá. Yfir orðslyngan himininn rak bjart ský og blíð undurskær sópranrödd lofaði meistarann. Þeir nötruðu af hræðslu en síðan var sviðið autt. Var þetta leiksýning eða óvænt innlit í annan heim? Meistarinn bað þá að að setja þetta ekki inn á Feisbók fyrr en hann væri risinn upp frá dauðum.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir