Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Það var ekki góð blanda að vera hrifnæmur og veikur á svellinu. Ferilskráin var ekki sú besta. Flumbrugangur og svik við meistarann frá Nasaret sem samfélagsmiðillinn Hanagal þagði ekki yfir. Nú gafst skyndilega óvænt tækifæri til að bæta stöðuna. Auðvitað elskaði hann meistarann. Þegar meistarinn spurði í þriðja sinn seig andartak í hann en sá svo ljúft jafntefli: 3-3. Þrenn svik og þrennar elskujátningar. Eldmóður fyllti hug hans þegar meistarinn bað hann að fylgja sér. Fylgd við málstaðinn var upprisa og snerist um að sýna náunganum kærleika og standa við hlið hans gegn óréttlæti heimsins. Gæta lambanna sem elskuðu lífið.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: