Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

„Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný. Menn munu falla í öngvit af ótta og kvíða fyrir því er koma mun yfir heimsbyggðina því að kraftar himnanna munu riðlast. Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð. En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og berið höfuðið hátt því að lausn yðar er í nánd.“ Jesús sagði þeim og líkingu: „Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám. Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður að sumarið er í nánd. Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs ríki er í nánd.

Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok uns allt er komið fram. Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.“

Lúkasarguðspjall 21.25-33

Hundrað orða hugleiðing

Þú snaraðist inn um turndyrnar og spurðir hvort einhver hefði fundið harðan skjálftann. Líka séð bláhvítt ský liðast tignarlega um á himnum? Önnur ský hefðu þeyst í allar áttir því himinninn klofnaði en þetta eina ský sigldi sína leið. Sólin hefði fallið í öngvit og dofnað og borgin fölnaði þegar kvíðinn gróf um sig á strætunum. Hann hefði komið til þín og sagt að lausnin væri í nánd. Og sumarið. Þú sagðist ekki hafa vaknað vel í morgun. Stamaðir nötrandi á götuhorninu að það væri reyndar vetur en fagnaðir því að Guðs ríki væri í nánd með kertaljós og kærleika.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir