Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Allir voru nú fullir eftirvæntingar og hugsuðu með sjálfum sér hvort Jóhannes kynni að vera Kristur. En Jóhannes svaraði öllum og sagði: „Ég skíri ykkur með vatni en sá kemur sem mér er máttugri og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans. Hann mun skíra ykkur með heilögum anda og eldi. Hann er með varpskófluna í hendi sér til þess að gerhreinsa láfa sinn og safna hveitinu í hlöðu sína en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi.“

Er allt fólkið lét skírast var Jesús einnig skírður. Þá bar svo við, er hann gerði bæn sína, að himinninn opnaðist og heilagur andi steig niður yfir hann í líkamlegri mynd, eins og dúfa, og rödd kom af himni: „Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.“

Lúkasarguðspjall 3.15-17, 21-22

Hundrað orða hugleiðing

Listmálarinn Piero della Francesca var í stökustu vandræðum. Hvernig átti hann að koma skírn meistarans frá Nasaret á auðan myndflötinn sem hrópaði til hans? Hann reyndi að sjá þetta fyrir sér í huganum þegar meistarinn rann saman við mannfjöldann sem bylgjaðist áfram í áttina til vatnsins. Svo opnast himinninn. Heilagur andi stígur á svið í dúfulíki og rödd heyrist. Piero della Francesca gekk fram og aftur um gólfið. Hugur hans var harðlæstur andspænis andartaki eilífðarinnar þegar himinninn opnaðist. Hann lyfti penslinum í dularfullu algleymi og myndin dróst upp. En rödd himinsins? Þú heyrir hana innra með þér þegar þú trúir.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir