Það þykir alltaf fréttnæmt þegar einhver sækir um prestakall. Ekki virðist prestaskortur vera mikill þar sem oftast er sótt um laus störf á vegum þjóðkirkjunnar.
Það var Austurfrétt sem greindi frá þessu 5. júní og fleytir Kirkjublaðið.is fréttinni áfram þó svo að það sé svo sem öðrum skyldara að segja fyrst frá því en Kirkjublaðinu.is og Austurfrétt.
Austfjarðaprestakall var auglýst laust til umsóknar á dögunum og rann út umsóknarfrestur 28. maí sl. Um er að ræða starf prests með sérstakar skyldur við Norðfjarðar-, Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarsóknir. Norðfirðingar hafa saknað þess síðustu ár að þar hafi ekki prestur haft búsetu eins og fyrrum var.
Einn sótti um hið auglýsta prestsstarf, Hilmir Kolbeins, guðfræðingur.
Verið er að ráða í prestsstarf sem sr. Bryndís Böðvarsdóttir sagði lausu haustið 2024. Í Austfjarðaprestakalli eru þjónandi prestar þau sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir og sr. Benjamín Hrafn Böðvarsson. Fyrir nokkru sagði sr. Arnaldur Bárðarson starfi sínu lausu en hann sat í Heydölum og er nú prestur í Árborgarprestakalli. Prestsstarfið sem hann gegndi var með meginþjónustu á suðursvæði Austfjarðaprestakalls og verður fljótlega auglýst laust til umsóknar.
Í Austfjarðaprestakalli eru íbúar tæplega 6000 og þar af eru um 4000 í þjóðkirkjunni. Prestakallið er víðfeðmt og þar er að finna 11 sóknir, allar með sóknarkirkju.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: