Engum blandast hugur um að fangelsisvist hefur áhrif á fjölskyldur fanga. Foreldrar, makar og börn horfast í augu við nýjar aðstæður og vita oftast ekki hvernig skuli bera sig að. Margt sækir á huga aðstandenda fanga og þeir finna sig í fyrstu oft vanmáttuga andspænis fangelsiskerfinu og öllu sem því fylgir.
Barnið er iðulega fórnarlamb aðstæðna sem hinir fullorðnu skapa því. Kjör barna eru harla ólík. Áföll í lífi þeirra geta verið margvísleg og misalvarleg. Fangelsisvist foreldra, föður eða móður, er þungbært áfall og því þyngra sem afplánun stendur lengur yfir; er röskun á öllum högum barnsins; hún vegur að tilfinningum, samskiptum og ytri kjörum þess. Fangelsið er aðskilnaður barns og foreldris sem verður að bregðast við með einhverjum hætti.
Þegar pabbi fór í fangelsi er heiti á nýútkominni bók eftir Ásdísi Birnu Bjarkadóttur. Höfundur hefur skrifað þessa bók handa börnum sem eiga þá sameiginlegu reynslu að einhver þeim nákominn er í fangelsi. Aðstandendur fanga eru saklaust fólk sem kynnist fangelsiskerfinu á sérstakan hátt. Ásdís Birna talar af eigin reynslu um þessi mál og það er styrkur bókarinnar.
Þessi bók er kærkomin fólki sem býr við mjög svo óvenjulegar aðstæður og margslungnar því að hún er ætluð sem samtalsbók til að styrkja börn sem horfa á eftir nánum ættingjum inn í fangelsi. Fangelsi er nefnilega alvörumál í samfélaginu: Fangelsisvist er opinber vanþóknun samfélagsins á þeirra nánustu vegna brota sem þeir fremja. Aðstandendur eru miður sín yfir því sem fjölskyldumeðlimir þeirra hafa gert á hlut annarra með brotum sínum og vildu svo sannarlega biðja hlutaðeigandi afsökunar fyrir hönd þeirra. Vita hins vegar að það er ekki alltaf opin leið vegna þess hvers eðlis mál eru.
Nú er það vandasamt að tala við barn um fangelsun móður eða föður. Samtalið tekur auðvitað mið af aldri þess og þroska. Hugmyndir barna um fangelsi sem komin eru til nokkurs þroska og vits eru mótaðar af heimi teiknimynda og kvikmynda. Þær hugmyndir eru alla jafna fráleitt líkar þeim veruleika sem við búum við. Mikilvægt er að sýna börnum á sem gleggstan hátt umgerð og aðbúnað þeirra sem í fangelsum eru. Börn vita býsna vel að þau sem í fangelsi fara hafa gert eitthvað sem þau áttu ekki að gera – svo það sé orðað á einfaldan hátt.
Hversdagslegt líf barnsins raskast þegar pabbi eða mamma fara í fangelsi. Það er kannski leyndarmál sem er erfitt að þegja yfir og ekki síst að skilja. Svo þarf barnið að svara spurningum annarra barna hvar pabbi eða mamma séu þegar afmælin eru haldin eða skólaskemmtanir. Börnin telja fangelsin líka vera hættulegan stað fyrir pabba eða mömmu – í fangelsi eru vondir karlar.
Ekki verður annað sagt en að texti bókarinnar sé yfirvegaður og komi sér vel sem traustur efniviður í samtal milli barns og fullorðins um alvörumál sem eru iðulega býsna flókin tilfinningalega. Höfundur tekur af skynsemi og hlýju á spurningum og vangaveltum sem skjóta upp kollinum hjá börnum í þessum óvenjulegu aðstæðum.
Myndir Auðar Þórhallsdóttur eru skýrar og sterkar í einfaldleika sínum og styðja vel við frásögn höfundar.
Kirkjublaðið.is óskar höfundi til hamingju með þessa bók og hvetur alla er sálusorgun stunda að kynna sér efni hennar.
Þegar pabbi fór í fangelsi, eftir Ásdísi Birnu Bjarkadóttur, útgefandi Vonarhönd, félagasamtök. Myndir gerði Auður Þórhallsdóttir, Hermann Sigurðsson braut um og hannaði. Bókin er 32 bls.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: