Menningarlíf blómstrar á landsbyggðinni og þar gegna kirkjukórar lykilhlutverki.
Kammerkór Egilsstaðakirkju var stofnaður árið 2010 undir handleiðslu þáverandi organista Egilsstaðakirkju, Tovalds Gjerde. Markmið kórsins hefur alla tíð verið að veita tónlistarfólki og söngvurum á Austurlandi rými til að flytja klassíska tónlist með sínu nefi og hefur hann tekið að sér að flytja verk eftir ýmis tónskáld á borð við Mozart, Händel og Charpentier ásamt því að frumflytja verk eftir ung tónskáld á Austurlandi eins og Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur. Árið 2022 tók Sándor Kerekes við keflinu.
Á morgun, 15. maí, heldur Kammerkór Egilsstaðakirkju tónleika í Langholtskirkju í Reykjavík kl. 20.00.
Árið 2026 eru 120 ár liðin frá fæðingu Zoltáns, 40 ár liðin frá andláti hans og Zsolt verður 80 ára. Vegna þessara tímamóta eru um allan heim haldnir tónleikar til heiðurs feðgunum og Kammerkór Egilsstaðakirkju lætur sig ekki eftir liggja.
Á tónleikunum í Langholtskirkju kl. 20.00 verða frumflutt verk eftir Zoltán Gárdonyi á íslensku, en hingað til hafa verk hans ekki verið þýdd á okkar ylhýra. Meðlimir Kammerkórsins tóku að sér það veigamikla verkefni að þýða textana á íslensku með dyggri aðstoð frá kórstjóranum, Sándor Kerekes. Bergljót Halla Kristjánsdóttir, sr. Þorgeir Arason og Stefán Bogi Sveinsson eru fólkið á bak við ljóðin sem verða flutt á íslensku í ungversku tónlistarumhverfi. Þess ber líka að geta að Gunnsteinn Ólafsson þýddi einn texta fyrir kórinn en hann, líkt og Gárdonyi-feðgarnir, stundaði nám við Franz Liszt-tónlistarháskólann.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: